Söfnunin á sjálfvirkum hjartahnoðara er lokið


Söfnunin á sjálfvirkum hjartahnoðara er lokið.

Söfnuninni sem ýtt var úr vör þann 14.maí sl. hefur gengið vonum framar. Höfum við fest kaup á sjálfvirka hjartahnoðaranum og er hann kominn í okkar hendur.

Einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki og sveitarfélögin fjögur í uppsveitum Árnessýslu hafa styrkt okkur til kaupanna og sendum við þeim mikið þakklæti fyrir.
Einnig viljum við þakka fjölskyldu og vinum  Magnúsar Óskarssonar í Hamratungu

og Pálmars Þorgeirssonar á Flúðum, sem gáfu í minningu þeirra.

Samfélagið hefur svo sannarlega staðið vel að baki þessarar söfnunnar og er ómetanlegt að finna að þegar þess er þörf leggjast allir á eitt

 

Með kæru þakklæti fyrir góðar undirtektir,

meðlimir í Björgunarfélaginu Eyvindi.