Björgum mannslífum saman!


Björgum mannslífum saman
– Söfnun fyrir sjálfvirkum hjartahnoðara

 

Á aðalfundi Björgunarfélagsins Eyvindar, sunnudaginn 14. maí  2017 var ákveðið að ýta úr vör söfnun fyrir sjálfvirkum hjartahnoðara.

Tækið hefur hlotið nafnið Lúkas frá hendi framleiðanda, en þar er vísað í að með notkun þess verður til auka maður við endurlífgun sem sér algjörlega um hjartahnoð án þess að þreytast eða vera fyrir öðrum. Notkun á Lúkasi getur skipt sköpum við endurlífgun.

Með notkun tækisins er hámarkshjartahnoð ávallt veitt. Rannsóknir hafa sýnt fram á að Lúkas skilar mun betri árangri en venjulegt hnoð.

Björgunarfélagið Eyvindur er í samstarfi við Sjúkraflutninga á Suðurlandi (Hsu) og  lögregluna og er kallað út þegar upp koma alvarleg veikindi eða slys í uppsveitum Árnessýslu.  Í uppsveitunum er langt í sérhæfða aðstoð og því nauðsynlegt að hafa yfir að ráða hóp sem hefur þekkingu og búnað sem þarf til að geta brugðist skjótt við og getur hafið fyrstu hjálp þar til sérhæfð hjálp berst.

Félagið mun leita til samfélagsins, fyrirtækja og einstaklinga um aðstoð til að safna fjármagni til kaupanna.
Saman munum við  bjarga mannslífum. 
Lúkas kostar um 2,5 milljónir með vsk.

Við höfum stofnað söfnunarreikning fyrir  hjartahnoðaranum og hér eru upplýsingar um hann:

0325-13-301382
KT. 460100-2590

Þeir sem vilja fá nánari upplýsingar um verkefnið geta haft samband  í síma 841-3480 eða sent okkur tölvupóst á netfangið bfeyvindur@simnet.is

Með  von um góðar undirtektir,
meðlimir í Björgunarfélaginu Eyvindi á Flúðum.